Eiffelturninn við Signu, umkringdur grænum trjám og bátum.

Einkaflug til og frá Frakklandi

Upplifðu taktinn, bragðið og andann í Frakklandi!

FRAKKLAND
Sjarmur, tíska og innblástur

Frakkland er land þar sem þú færð að njóta lífsins. Hver og einn staður hefur sinn takt og sjarma: morgunbolli á kaffhúsi í París eða gyllt sólarlag við strendur Miðjarðarhafsins. Frakkland er áfangastaður sem veitir innblástur og býður öll velkomin en þar má finna sögufrægar borgir, heimsklassa matargerð, list, tísku og stórbrotið landslag.

Fáðu sérsniðna verðáætlun
Fylltu inn í formið
Gefðu okkur upplýsingar um ferðaplönin þín (t.d. upplýsingar um flug, gerð af flugvél, sérþarfir).
Fáðu verðáætlun
Við höfum svo samband og gefum þér sérsniðna verðáætlun sem byggir á þínum óskum.
Staðfestu bókunina
Þegar verðáætlunin er samþykkt, getur þú staðfest beiðni þína og við sjáum um rest.
  • Current Flugupplýsingar
  • Persónuupplýsingar
  • Complete
- Farþegar +
Helstu áfangastaðir í Frakklandi
Leigðu einkaflugvél til eða frá Frakklandi
Eiffelturninn við Signu, umkringdur grænum trjám og bátum.

París

Loftmynd af höfninni í Nice (Port Lympia) í Frakklandi.

Nice

Saint-Georges-kirkjan umkringd litríkum húsum í Vieux-Lyon

Lyon

Saint-Pierre-brúin og Saint-Joseph-kapellan í Toulouse í sólarlagi

Toulouse

Notre-Dame de la Garde dómkirkjan í Marseille við sólsetur

Marseille

Hin forna Saint-André-dómkirkja í sögulegum miðbæ Bordeaux

Bordeaux

Einkaflug til/frá París

París, "borg ljósanna", er þekkt fyrir sögu sína, menningu og mikinn sjarma. Áin Signa glitrar við sólarupprás, Eiffelturninn mótar borgarsvipinn og á Louvre-safninu má finna heimsþekkt listaverk. París sameinar aldalanga sögu og nútímann og hver ferð er einstök. Sjáðu Notre Dame kirkjuna með eigin augum og labbaðu í gegnum heillandi götur Montmartre.

Mælt er með eftirfarandi flugvöllum: Paris Charles de Gaulle, Paris Orly, og Paris Le Bourget.

Eiffelturninn við Signu, umkringdur grænum trjám og bátum.

Einkaflug til/frá Nice

Nice, sem er staðsett við frönsku Rivíeruna, er sannkölluð Miðjarðarhafsperla sem býður upp á sól, strendur og menningu. Göngugatan Promenade des Anglais liggur meðfram stórkostlegri strandlengjunni, á meðan litríkur Gamli bærinn (Vieille Ville) og strandirnar skapa hlýlegt og aðlaðandi andrúmsloft. Milda loftslagið og fágaður glæsileiki borgarinnar laðar að bæði strandunnendur, sælkera og þá sem heillast af lífsstíl frönsku Rivíerunnar.

Mælt er með eftirfarandi flugvöllum: Nice Côte d’Azur Airport.

Loftmynd af höfninni í Nice (Port Lympia) í Frakklandi.

Einkaflug til/frá Lyon

Lyon er borg sem gleður skynfærin enda þekkt sem höfuðborg franskrar matargerðar. Þarna er fullkomið að ganga um Renaissance göturnar, skoða dularföll göng sem kallast traboules og borða ósvikinn Lyon mat á notalegum "bouchons" (hefðbundnum veitingastöðum). Rómverskar rústir, basilíkur uppi í hæðunum og lifandi árbakkinn gefa borginni sérstakan karakter.

Mælt er með eftirfarandi flugvöllum: Lyon Saint Exupéry Airport.

Saint-Georges-kirkjan umkringd litríkum húsum í Vieux-Lyon

Einkaflug til/frá Toulouse

"Bleika borgin", Toulouse, er fræg fyrir terrakotta byggingar og líflega námsmannastemningu. Borgin er miðstöð geimtækni í Evrópu og hún sameinar nýsköpun og ríka menningararfleifð. Kennileiti eins og Capitole, hin glæsilega Basilique Saint-Sernin, fagrir bakkar Garonne-árinnar og Cité de l’Espace miðstöðin endurspegla kraftmikinn og líflegan anda borgarinnar.

Mælt er með eftirfarandi flugvöllum: Toulouse Blagnac Airport.

Saint-Pierre-brúin og Saint-Joseph-kapellan í Toulouse í sólarlagi

Einkaflug til/frá Marseille

Marseille er sögufræg hafnarborg við Miðjarðarhafið með einstakan sjarma og er jafnframt elsta borg Frakklands. Borgin heillar með andstæðum sínum - þar sem lífleg höfn Vieux-Port, litríkar götur Le Panier, stórfenglegt útsýni frá Notre-Dame de la Garde og ósnortin náttúra í Calanques þjóðgarðinum mætast. Fjölmenningarlegur kraftur borgarinnar, nálægðin við hafið og rík saga skapa ógleymanlega franska upplifun.

Mælt er með eftirfarandi flugvöllum: Marseille Provence Airport.

Notre-Dame de la Garde dómkirkjan í Marseille við sólsetur

Einkaflug til/frá Bordeaux

Bordeaux er á heimsminjaskrá UNESCO og liggur í suðvesturhluta Frakklands. Borgin er þekkt fyrir vínin sín, glæsilegar byggingar og líflega árbakka. Meðal helstu kennileita eru Place de la Bourse, La Cité du Vin, Saint-André-kirkjan og hinir fögru Quais de Bordeaux. Bordeaux blandar sögulegum þokka við nútímamenningu og er í miklum metum hjá öllum ferðalöngum, ekki síst matgæðingum.

Mælt er með eftirfarandi flugvöllum: Bordeaux Mérignac

Hin forna Saint-André-dómkirkja í sögulegum miðbæ Bordeaux
Alþjóðlegt aðgengi og fyrsta flokks þjónusta
Innanlandsflug
Allar áfangastaðir innan Bretlands.
Millilandaflug
Allir áfangastaðir í Evrópu, miðausturlöndum, Bandaríkjunum og víðar.
Þægilegar tengingar
Víðtækt net flugvalla, einkaflugstöðva og millilendingarþjónustu.
Hröð tollafgreiðsla
Forgangsafgreiðsla í gegnum toll og öryggisleit.
Lúxus og þægindi á ferðalaginu
Séraðgangur að þægilegum biðstofum á flugvöllum.
VIP þjónusta
Persónuleg aðstoð til að tryggja hnökralausa ferðaupplifun.

Ferðalagið þitt hefst hér

Leigðu einkaflugvél frá eða til Þýskalands með Air Broker Iceland. Starfsfólk okkar er til taks allan sólarhringinn til að tryggja að upplifun þín verði hnökralaus og þægileg.

Önnur þjónusta
Þyrla flýgur yfir snævi þakin fjöll

Leiga á þyrlu við hvaða tilefni sem er: einföld þyrluflug eða sérsniðin upplifun.

Sjúkraflug yfir fjöllum

Áreiðanleg sjúkraflug í boði allan sólarhringinn um allan heim.

Séð inn í einkaþotu

Önnur þjónusta tengd leiguflugi sem reyndur og áreiðanlegur miðlari býður upp á.